Þetta skjalasafn inniheldur gögn og kóða fyrir lokaskýrslu verkefnisins HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar. Markmið verkefnisins var að þróa og útfæra tæknilausnir fyrir prjónavélar sem bæta framleiðsluferli og auka möguleika á sjálfvirkni í textílframleiðslu.
HiDef Textíll: Tæknivæddar prjónavélar verkefnið snýst um að sameina hefðbundna textílvinnslu og nútímatækni með nýsköpun í gömlum prjónavélum frá 10. áratugnum. Með því að snjallvæða úrelda prjónavél með netsamskiptum og frjálsum hugbúnaði verður til tól sem hentar skapandi starfi nútímans, en jafnframt stuðlar að sjálfbærni. Verkefnið er þverfaglegt og felur í sér þátttöku nemenda úr vélaverkfræði, hagnýttri stærðfræði og fatahönnun, sem fá tækifæri til að vinna saman að þróun tækjalausna, verkefnastjórnun og frumgerðasmíði. Markmiðið var að hanna starfshæfa prjónavél sem hægt verður að kynna á ráðstefnum eins og Vísindavöku Rannís, UTmessunni og Hönnunarmars. Verkefnið stuðlar að aukinni þátttöku í STEAM menntun, þar sem listir og tækni mætast á nýstárlegan hátt, og varðveitir um leið menningararf í nútímasamhengi.
Elías Lúðvíksson, Guðrún Ísafold Hilmarsdóttir og Snæfríður Ebba Ásgeirsdóttir
Ábyrgðaraðili: Helga Ingimundardóttir
NSN-report.pdf
: Fullunnin lokaskýrsla verkefnisins á PDF formi.NSN-signed.pdf
: Undirrituð útgáfa af lokaskýrslunni.README.md
: Þessi leiðbeiningarskrá með yfirliti yfir verkefnið.main.tex
: Aðalskjal fyrir lokaskýrsluna skrifað í LaTeX.myndir/
: Myndir sem notaðar eru í skýrslunni.prjon_honnunarvinna.tex
: Kafli í skýrslunni sem lýsir hönnunarvinnu tengdri prjóni.references.bib
: Heimildaskrá í BibTeX sniði.sjalfvirk_mynsturgerd.tex
: Kafli í skýrslunni sem fjallar um sjálfvirka mynstragerð.velbunadur.tex
: Kafli í skýrslunni sem fjallar um vélbúnað verkefnisins.
Vitnað er í eftirfarandi GitHub geymslur í skýrslunni:
-
Sjónabók: Repo fyrir sniðmát og myndgreiningu á prjónamynstrum. HiDefTextiles/Sjonabok
-
Mynsturgerð: Repo fyrir föll og reiknirit sem styðja við munsturgerð.
HiDefTextiles/mynsturgerd -
PassAPI: Repo fyrir kóða sem sér um stýringu prjónavélarinnar.
HiDefTextiles/passAPI -
PassapNext: Repo fyrir opið vefviðmót tengt verkefninu.
tungufoss/passapnext
Til að vinna með LaTeX skjölin þarftu:
- Uppsett LaTeX kerfi (t.d. TeX Live eða Overleaf).
- Ritstjóra sem styður LaTeX, t.d. TeXShop eða VS Code með LaTeX viðbótum.
- Opnaðu
main.tex
í LaTeX-ritstjóra. - Gakktu úr skugga um að allar skrár, t.d. myndir í
myndir/
og heimildir íreferences.bib
, séu tiltækar. - Keyrðu LaTeX til að búa til PDF skýrslu.
Til að endurnýja PDF útgáfuna:
latexmk -pdf main.tex && mv main.pdf NSN-report.pdf
Ef spurningar vakna um efni eða framsetningu skýrslunnar, vinsamlegast hafið samband við:
Helga Ingimundardóttir (verkefnastjóri HiDef Textíll), lektor við iðnaðarverkfræðideild Háskóla Íslands, sjá: hi.is/starfsfolk/helgaingim.